{"product_id":"karst-a6-vasabok-ur-steinapappir-audar-sidur","title":"Karst A6 vasabók úr steinapappír, auðar síður","description":"\u003cp\u003eGamla Bókabúðin kynnir með stolti stílabækur gerðar úr steinum! - Verið velkomin í 21. öldina!  Karst stílabækur úr steinum eru eins og stílabækur úr pappír, nema miklu betri og umhverfisvænni.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eKarst hefur sérhæft sig í framleiðslu á pappír úr steinum, eða \u003cmeta charset=\"utf-8\"\u003e\u003cspan data-mce-fragment=\"1\"\u003eKalsíumkarbónat, sem er unnið úr endurunnum kalsteinum sem falla til við aðra framleiðslu og því þarf ekki að fella eitt einasta tré við framleiðslu á Karst stílabókum.\u003c\/span\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eÞað þarf ekkert vatn í framleiðsluna og engin not fyrir hættulegar efnablöndur og sýru til að drepa bakteríur og gera pappírinn hvítan, þar sem kalksteinninn er náttúrulega hvítur. Þá þarf 85% minni orku til að framleiða steinapappír, heldur en pappír úr trjám, sem gerir stílabækurnar alveg einstaklega umhverfisvænar.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eUmhverfisspor Karst stílabóka er 60% minna en sambærilegar stílabækur úr trjákvoðu. Að auki plantar Karst nýjum trjám fyrir hverja selda stílabók, þannig að hver bók er kolefnisjöfnuð að fullu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eEn hvernig er að skrifa á og nota pappír gerður úr steinum? - Það er frábært! Pappírinn er mýkri viðkomu heldur enn venjulegur pappír, þótt ótrúlegt meigi virðast og fyrir vikið er einstaklega gott að skrifa á hann. Steinapappírinn er mjög endingagóður og erfitt að rífa hann.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eSvo er steinapappír auðvitað vatnsheldur, ólíkt hinum hefðbundna pappír. - Því þarf ekki að hafa áhyggjur af því að missa kaffibollan eða vatnsglasið á glósur vetrarins, ljóð dagsins eða dagbókafærslur seinustu ára. Karst stílabækurnar henta líka frábærlega á sóðalega og raka vinnustaði, þar sem þörf er á sterkum og endingagóðum pappír sem þolir bleytu og hendur vinnandi manna og kvenna. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e","brand":"Gamla Bókabúðin","offers":[{"title":"Eucalypt","offer_id":68101236195527,"sku":"R0562","price":2400.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"Stone","offer_id":68101236064455,"sku":"R0558","price":2400.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"Forest","offer_id":68101236097223,"sku":"R0559","price":2400.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"Slate","offer_id":68101236129991,"sku":"R0560","price":2400.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true},{"title":"Navy","offer_id":68101236162759,"sku":"R0561","price":2400.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0545\/0743\/8279\/files\/Karst.stonepaper.notebook.A6.pocket.journal.eucalypt.png?v=1793123167","url":"https:\/\/gamla.is\/products\/karst-a6-vasabok-ur-steinapappir-audar-sidur","provider":"Gamla Bókabúðin","version":"1.0","type":"link"}