Claus Porto er sápuframleiðandi frá Portúgal sem var stofnaður árið 1887. Sápurnar frá Claus Porto njóta mikillar virðingar fyrir bæði gæði sín og ferska og góða lykt. Sápurnar eru framleiddar eftir gömlum aðferðum og pakkaðar inn í fallegar Art Deco umbúðir sem sækja innblástur sinn í fjölbreyttar og skrautlegar veggjaflísar sem má finna víða í Portúgal.
Musgo Real er herravörulína frá Claus Porto. Frá stofnun árið 1887, þegar framleiðslan hófst með vönduðum sápum, hefur línan þróast í fágað úrval af ilmum, sápum og vörum fyrir skeggumhirðu – þar sem hefð og gæði fara hönd í hönd.
Black edition ilmurinn ber keim af sítrónu, juniper berjum, kakó, vetyver og tonka baunum.
Með léttri áferð og unnin úr 99% náttúrulega unnum næringarolíum sem gefa raka og mýkja hárið, er þessi skeggolía lykillinn að sterkara og heilbrigðara útliti skeggsins.