Blackwing framleiðir hágæða blýanta sem hafa skapað sér verðskuldaðan sess sem einhverjir bestu blýantar sem hafa verið framleiddir í heiminum. Saga þeirra nær aftur til ársins 1934 og hafa verið notaðir af mörgum okkar fremstu listamönnum og rithöfundum í gegnum öldina.
Blackwing Pearl er gríðalega vinsæll meðal teiknara, þar sem það er gríðalega þægilegt að teikna og skyssa með honum. Blýanturinn er mitt á milli Blackwing 602 og Matte í mýkt.
Blýanturinn kemur með fallegri hvítri áferð og hvítu ferköntuðu strokleðri sem er einkennandi fyrir Blackwing blýanta.
Blackwing Pearl er seldur í 12 blýanta setti sem kemur í fallegum kassa og nýtist einnig sem pennaveski.