Ókeypis heimsending ef verslað er fyrir meira en 20.000 kr.

Trudon kerti - ROSE POIVRÉE
Trudon kerti - ROSE POIVRÉE
Trudon kerti - ROSE POIVRÉE
  • Hlaða mynd inn í gallerískoðara, Trudon kerti - ROSE POIVRÉE
  • Hlaða mynd inn í gallerískoðara, Trudon kerti - ROSE POIVRÉE
  • Hlaða mynd inn í gallerískoðara, Trudon kerti - ROSE POIVRÉE

Trudon kerti - ROSE POIVRÉE

Venjulegt verð
14.900 kr
Söluverð
14.900 kr
Venjulegt verð
Uppselt!
Einingaverð
per 
Með vsk.

Trudon kertaframleiðslan var stofnuð árið 1643 og er elsti kertaframleiðandi heims. Trudon er eini konunglegi kertaframleiðandi Frakklands og sá meðal annars um að útvega Napoléon Bonaparte kerti í hæsta gæðaflokki. Á heimssýningunni í París, árið 1889 þegar Eiffelturninn var opnaður, hlaut Trudon Gullverðlaun fyrir framúrskarandi framleiðslu. 

Trudon kertin hafa fyrir löngu skipað sér sess og verið leiðandi í veraldarsögunni, til að mynda var Trudon fyrsti framleiðandi heims til að framleiða kerti úr býflugnavaxi, en í dag er vaxið unnið úr plöntum og eru kertin því fullkomlega vegan. Hluti af hverju seldu Trudon kerti fer til verndunar býflugna í útrýmingarhættu. Slagorð Trudon er “Deo regique laborant” sem þýðir, "Býflugurnar vinna fyrir Guð og Konung."

Trudon eru heimsklassa lúxus kerti sem vekja athygli hvar sem þau eru, bæði vegna einstakrar lyktar og óviðjafnanlegt útlit, þar sem hvert kerti er að fullu handgert í Frakklandi. Fyrir vikið verður hver krukka einstök í útliti en lögun þeirra er sótt í franskar kampavínsfötur.

Rose Poivrée lyktin: 

Vöndur af ferskum og gróskumiklum rósum vekur upp minningar um ást Marie Antoinette á þessu tignarlega blómi. Keimur af toskönskum svörtum pipar í hjarta rósarinnar skapar fíngerða og óvæntan samhljóm.

Sérútgáfan Rose Poivrée ilmkertið var hönnuð af Cire Trudon í samstarfi við hönnuðinn Giambattista Valli í tilefni af opnun fyrstu verslunar hans árið 2010 við Rue Boissy d’Anglas í París.

 

Lyktarprófíll:

Höfuð: Mandarína, dalalilja og Madagaskar-pipar

Hjarta: Ambra, palmarósa og rós

Grunnur: Musk og sandelviður

 

Kertin fást í nokkrum stærðum og eru öll handgerð frá grunni og koma í fallegri Trudon gjafaöskju.

70gr kerti: H: 6,5 cm Ø: 5,5 cm. Einn kveikiþraður og brennslutími 18-20 klst.
270gr kerti: H: 10,5 cm Ø: 9 cm. Einn kveikiþraður og brennslutími 55-60 klst.
800gr kerti: H: 16 cm Ø: 13,5 cm. Þrír kveikiþræðir og brennslutími 110-120 klst.
2,8kg kerti: H: 21,5 cm Ø: 18 cm Fimm kveikiþræðir og brennslutími yfir 300 klst.

Varðandi umhirðu og brennslu á kertinu er mikilvægt að brenna kertið ekki í of lengi í senn. - Það er eins mikilvægt að passa upp á það að bræða allt efsta lag kertisins í hverjum bruna.  Með því verður komið í veg fyrir að kertið brenni sig hraðar niður í miðjunni. Sé þetta gert á kerið að brenna í fullkomnu jafnvægi niður á botn. Látið kertið ekki standa í dragsúr eða nálægt eldfimum efnum, til að mynda gardínum sem geta skapað brunahættu.