Conway Stewart er einn fremsti pennaframleiðandi heims, stofnað í Bretlandi árið 1905. Hvern einasta Conway Stewart penna þarf að sérpanta og er hann handgerður frá grunni úr besta mögulega hráefni og málmum sem heimurinn bíður upp á í dag.
Margir af helstu heimsleiðtogum fyrri ára og nú hafa notið þess að eiga og skrifa með Conway Stewart blekpennum, þar má til að mynda nefna Elísubetu II Englandsdrottingu, Winston Churchill, Tony Blair, Bill Clinton og George Bush.
Það jafnast fátt á við fegurð og fágun Conway Stewart blekpenna. Sparipenni sem prýðir falleg skrifborð og fáguð föt. Svo ekki sé talað um skriftareiginleika pennana, sem eru einstakir, vegna hönnunar oddsins sem er svo fullkomnað með mýkt gullsins.
Conway Stewart Churchill Vermeil blekpenninn gullfallegur penni sem er 23k gullhúðað sterling silfur með "guilloché" grafnu mynstri gert af aldargamallri vél sem ekki er hægt að endurgera með hvaða nútímavél sem er. Þessi aðferð gerir pennann alveg einstakan í safnið.
Þegar Elísabet II Englandsdrottning fagnaði 50 ára valdatíð sinni árið 2002 fékk hún penna að gjöf frá Conway Stewart. Sá penni var alveg eins og þessi nema að hann hafði verið 18k gull í gegn.
Penninn sem sem við erum með í sölu er númer 10 og skartar fínum 18kt gull oddi. Pennin er með blekpumpu til að draga upp blek en einnig er hægt að nota hefðbundin blekhylki í pennan.
Penninn er 14,6cm langur lokaður en 18,1cm opinn með lokið á efri endanum. Penninn er 1,5cm í þvermál og 53 grömm. Oddur: Miðlungs.
Þetta er penni sem endist áratugum saman, fallegur erfðargripur og einstakur söfnunargripur sem mun líklega auka verðgildi sitt með árunum.




