Kaweco er hágæða þýskur pennaframleiðandi sem hefur verið starfræktur frá árinu 1883. Kaweco pennarnir eru þekktir fyrir afbragðs gæði á viðráðanlegu verði, sem gerir þá vinsæla penna til daglegra nota.
Kaweco Collection pennarnir eru framleiddir í mjög takmörkuðu magni og aðeins seldir í eitt ár í senn. Þessi fallegi penni er byggður á Kaweco Liliput pennunum sem byrjuðu í framleiðslu árið 1908 og eru fyrir löngu orðnir að klassík.
Kaweco Liliput pennarnir eru einhverjir þeir minnstu sem eru framleiddir í heiminum í dag, en þeir eru aðeins 9,7 cm að lengd en verða 12,5 cm langir þegar lokið er komið á endan, sem gerir hann einstaklega þægilegan til að skrifa með.
Pennin er gerður úr grænu áli sem gerir hann endingargóðan og stílhreinan.
Penninn tekur standard blekhylki, sem fást í mörgum litum.