Ókeypis heimsending ef verslað er fyrir meira en 20.000 kr.

Sailor Shikiori, Bleikur Blekpenni.
Sailor Shikiori, Bleikur Blekpenni.
Sailor Shikiori, Bleikur Blekpenni.
  • Hlaða mynd inn í gallerískoðara, Sailor Shikiori, Bleikur Blekpenni.
  • Hlaða mynd inn í gallerískoðara, Sailor Shikiori, Bleikur Blekpenni.
  • Hlaða mynd inn í gallerískoðara, Sailor Shikiori, Bleikur Blekpenni.

Sailor Shikiori, Bleikur Blekpenni.

Venjulegt verð
16.000 kr
Söluverð
16.000 kr
Venjulegt verð
Uppselt!
Einingaverð
per 
Með vsk.

Sailor pennarnir urðu fyrst til árið 1911 þegar verkfræðingur frá Hiroshima sá breskan blekpenna frá sjómanni sem hafði verið í siglinum þar. Í framhaldi af því ákvað verkfræðingurinn Kyugoro Sakata að framleiða fyrstu japönsku blekpennana, sem við þekkjum í dag sem Sailor penna.

Sailor pennarnir eru þekktir um allan heim fyrir einstaklega vandaða odda sem hafa frábæra skriftareiginleika, enda framleiddir í japan þar sem fínleiki, nákvæmni og vandað handbragð á sér mikla og langa sögu.

Sailor Shikiori Yozakura penninn er einn af árstíðapennum Sailor, en árstíðirnar eru gríðalega mikilvægar í japanskri menningu. Hvíti endinn á lokinu er tunglið. Bleiki Yozakura penninn táknar vorið í japan, þegar tunglskinið baðar kirsuberjablómin. 

Penninn er bleikur með gyllingu og fínum stál oddi. Pennin notar Sailor blekhylki og einnig er hægt að setja Sailor Blekpumpu í pennan.

Penninn er 13,4cm langur og 12,2 grömm. Oddur: Fínn. (Ath að japanskir oddar eru fíngerðari en evrópskir oddar)

Penninn kemur í fallegri gjafaöskju.