Sailor pennarnir urðu fyrst til árið 1911 þegar verkfræðingur frá Hiroshima sá breskan blekpenna frá sjómanni sem hafði verið í siglinum þar. Í framhaldi af því ákvað verkfræðingurinn Kyugoro Sakata að framleiða fyrstu japönsku blekpennana, sem við þekkjum í dag sem Sailor penna.
Sailor pennarnir eru þekktir um allan heim fyrir einstaklega vandaða odda sem hafa frábæra skriftareiginleika, enda framleiddir í japan þar sem fínleiki, nákvæmni og vandað handbragð á sér mikla og langa sögu.
Sailor Shikiori Yodaki penninn er einn af árstíðapennum Sailor, en árstíðirnar eru gríðalega mikilvægar í japanskri menningu. Hvíti endinn á lokinu er tunglið. Dökk rauði Yodaki penninn táknar sumarið í japan, þegar varðeldurinn á ströndinn speglast í næturdökkum sjónum.
Penninn er dökk rauður með gyllingu og fínum stál oddi. Pennin notar Sailor blekhylki og einnig er hægt að setja Sailor Blekpumpu í pennan.
Penninn er 13,4cm langur og 12,2 grömm. Oddur: Fínn. (Ath að japanskir oddar eru fíngerðari en evrópskir oddar)
Penninn kemur í fallegri gjafaöskju.