![Emaleruð Falcon sósukanna, 600 ml.](http://gamla.is/cdn/shop/files/ScreenShot2021-04-27at22.53.38_b2ac121e-fa78-4c83-934e-0fe90438e684_{width}x.png?v=1701639539)
Falcon Enamelware er meira en aldargamall breskur búsáhaldarframleiðandi sem hefur verið leiðandi í framleiðslu á stílhreinum og fallegum emaleruðum eldhúsáhöldum.
Þessi fágaða sósukanna er fullkomin til að bera ábyrgð á lauksmjörinu með þriðjudags þorskinum eða til að skammta ríflega af sveppasósunni á sunnudags lambalærið.
Emaleraðar eldhúsvörur endast þér út ævina, eru umhverfisvænar og meiga fara í ofn og þvottavél og þær brotna auðvitað aldrei.
Kaupmannshjónin í Gömlu Bókabúðinni hófu sitt heimili saman árið 1915 og afkomendur þeirra eru enn að nota emelaraðar skálar og diska frá þeim. - Tímalausar, endingargóðar vörur sem fegra heimilið.