Trudon kertaframleiðslan var stofnuð árið 1643 og er elsti kertaframleiðandi heims. Trudon er eini konunglegi kertaframleiðandi Frakklands og sá meðal annars um að útvega Napoléon Bonaparte kerti í hæsta gæðaflokki. Á heimssýningunni í París, árið 1889 þegar Eiffelturninn var opnaður, hlaut Trudon Gullverðlaun fyrir framúrskarandi framleiðslu.
Trudon kertin hafa fyrir löngu skipað sér sess og verið leiðandi í veraldarsögunni, til að mynda var Trudon fyrsti framleiðandi heims til að framleiða kerti úr býflugnavaxi, en í dag er vaxið unnið úr plöntum og eru kertin því fullkomlega vegan. Hluti af hverju seldu Trudon kerti fer til verndunar býflugna í útrýmingarhættu. Slagorð Trudon er “Deo regique laborant” sem þýðir, "Býflugurnar vinna fyrir Guð og Konung."
Trudon eru heimsklassa lúxus kerti sem vekja athygli hvar sem þau eru, bæði vegna einstakrar lyktar og óviðjafnanlegt útlit, þar sem hvert kerti er að fullu handgert í Frakklandi. Fyrir vikið verður hver krukka einstök í útliti en lögun þeirra er sótt í franskar kampavínsfötur.
Summer haze lyktin: Rósar kaka
Summer Haze er ljúf og blómarík samsetning sem geislar af tærri gleði. Ilmurinn er fágaður og um leið djarfur í framsetningu sinni.
Í toppnótum birtist sætur og ávaxtaríkur rauðberja-makarónukeimur sem opnar ilmheiminn með leikandi og girnilegum blæ. Hjartað einkennist af ríkulegri og djúpum rósarkeim, sem veitir samsetningunni glæsileika og fyllingu. Í grunninum liggur mjúkur muskgrunnur með hlýjum undirtónum tonkabaunar, sem skapar varanlega og umvefjandi dýpt.
„Í sumarskugganum sé ég ómótstæðilega röð safaríkra og örlítið súrra rauðra ávaxta, óteljandi fersk rósablöð og möndlumakarónur,“ lýsir ilmgerðarkonan Alexandra Carlin.
Kertið er sumarilmur Trudon 2025 og fæst í takmörkuðu magni.
Lyktarprófíll:
Höfuð: Dalalilja og rauðberja-makarónukeimur
Hjarta: Pelargónía og rósarkeimur
Grunnur: Tonkabaunir, musk og patsjúlí
Kertin fást í nokkrum stærðum og eru öll handgerð frá grunni og koma í fallegri Trudon gjafaöskju.
70gr kerti: H: 6,5 cm Ø: 5,5 cm. Einn kveikiþraður og brennslutími 18-20 klst.
270gr kerti: H: 10,5 cm Ø: 9 cm. Einn kveikiþraður og brennslutími 55-60 klst.
800gr kerti: H: 16 cm Ø: 13,5 cm. Þrír kveikiþræðir og brennslutími 110-120 klst.
2,8kg kerti: H: 21,5 cm Ø: 18 cm Fimm kveikiþræðir og brennslutími yfir 300 klst.
Varðandi umhirðu og brennslu á kertinu er mikilvægt að brenna kertið ekki í of lengi í senn. - Það er eins mikilvægt að passa upp á það að bræða allt efsta lag kertisins í hverjum bruna. Með því verður komið í veg fyrir að kertið brenni sig hraðar niður í miðjunni. Sé þetta gert á kerið að brenna í fullkomnu jafnvægi niður á botn. Látið kertið ekki standa í dragsúr eða nálægt eldfimum efnum, til að mynda gardínum sem geta skapað brunahættu.


