Í íþróttum er mikilvægt að setja sér mælanleg markmið og meta svo árangurinn út frá löggildum mælitækjum, líkt og málbandi. - Málband þetta hefur að geyma heila fimm metra sem ætti að duga flestum markmiðum, þó ljóst megi vera að það hefði seint dugað til að mæla stökkkraft Sigga Habb í langstökkinu hér í denn.
Eins er óráðlegt og einfaldlega ólöglegt að standa í framkvæmdum og húsbygginum á Flateyri nema stuðst sé við Grettismálbandið góða. - Það tryggir réttar lengdir og hallalaust hús.
Grettismálbandið kemur í mjög takmörkuðu upplagi og allt söluandvirði þess rennur beint í uppbyggingarstarf Grettis á Flateyri.