Blackwing framleiðir hágæða blýanta sem hafa skapað sér verðskuldaðan sess sem einhverjir bestu blýantar sem hafa verið framleiddir í heiminum. Saga þeirra nær aftur til ársins 1934 og hafa verið notaðir af mörgum okkar fremstu listamönnum og rithöfundum í gegnum öldina.
Blackwing framleiðir reglulega nýja blýanta í samstarfi eða til heiðra einhvern eða eitthvað áhugavert. Nýjustu blýantar Blackwing eru tileinkaðir Bruce Lee, sem var ekki aðeins frábær bardagamaður og leikari, heldur einnig mikill hugsjónamaður. Talan 651 vísar í fyrsta skólann sem hann reisti í Seattle.
Blýanturinn er einfaldur í hönnun, enda sagði Bruce Lee: “The art of Jeet Kune Do is simply to simplify.” - Gulur og svartur með silfraðan enda og gult ferkantað strokleður. Blýið er extra hart sem hæfir Bruce Lee vel.
Blackwing 651 er aðeins seldur í 12 blýanta setti sem kemur í fallegu Bruce Lee boxi. Blýantanir eru framleiddir í mjög takmörkuðu magni og aðeins í sölu í takmarkaðan tíma.
Væntanleg aftur til okkar þann 10 des. - Það er hægt að ganga frá pöntun núna og fá sent um leið og það kemur til landsins.