Carrière Frères er litla systir Trudon, stofnað árið 1884. Kertin frá Carrière Frères eru framleidd undir sama þaki og Trudon, í Normandí í Frakklandi. Á meðan Trudon bíður upp á fágaða, marglaga og flókna lyktaprófíla eru Carrière Frères frábær í einfaldleika sínum.
Lyktirnar frá Carrière Frères byggjast upp á blómum, ávöxtum og viðartegundum. Hreinar og bjartar lyktir sem draga þig inn í blómagarða, skóga og á ávaxta akra.
Carrière Frères kertaframleiðandinn hlaut gullverðlaun á heimssýningunni í París 1889 fyrir Ilmkerti sín, enda þótti frumkvöðlastarf þeirra einstakt með hönnun á hágæða ilmkertum til að bregðast við aukinni raflýsingu, sem gerði kerti óþörf til ljósgjafar.
Hátíðarkertin frá Carrière Frères eru eftirsótt, fyrir gæði sín og einstöku hátíðarlykt. Þau eru framleidd í mjög takmörkuðu upplagi.
Siberian Pine gjafasett: Í ár er það síberíska furan sem er allsráðandi sem hátíðarlykt, enda einstaklega fögur jólalykt sem flestir kannast við. Kertin koma þrjú saman í fallegri gjafaöskju sem gleður þá sem þiggja og nýtist þeim vel.
Kertin eru úr lífrænt vottuðum evrópskum hráefnum og er gert úr 70gr. af 100% jurtavaxi. Hvert kerti er 7cm hátt og 5,5cm í þvermáli og brennur í 20-25 klst. Ekki er mælt með því að brenna það lengur en 2 klst í senn til að hámarka endingu og lykt.