Carrière Frères er litla systir Trudon, stofnað árið 1884. Kertin frá Carrière Frères eru framleidd undir sama þaki og Trudon, í Normandí í Frakklandi. Á meðan Trudon bíður upp á fágaða, marglaga og flókna lyktaprófíla eru Carrière Frères frábær í einfaldleika sínum.
Lyktirnar frá Carrière Frères byggjast upp á blómum, ávöxtum og viðartegundum. Hreinar og bjartar lyktir sem draga þig inn í blómagarða, skóga og á ávaxta akra.
Carrière Frères kertaframleiðandinn hlaut gullverðlaun á heimssýningunni í París 1889 fyrir Ilmkerti sín, enda þótti frumkvöðlastarf þeirra einstakt með hönnun á hágæða ilmkertum til að bregðast við aukinni raflýsingu, sem gerði kerti óþörf til ljósgjafar.
Museum kertin frá Carrière Frères eru unnin í samstarfi við þjóðminjasafn Frakklands í París þar sem unnið er með framandi plöntur sem eiga sér djúpa og mikla sögu.
Vatnalilja: Vatnaplantan tilheyrir Nymphaeaceae fjölskyldunni sem samanstendur af 35 tegundum um allan heim. í Evrópu voru aðeins þekktar hvítar vatnaplöntur. Franskir garðyrkjufræðingar blönduðu saman evrópskum og suðrænum tegundum til að búa til litaða blendinga sem síðar voru kynntir og sýndir sýndir í Trocadero-skálunum á heimssýningunni í París árið 1889 samhliða málverki Claude Monet.
Kertið er úr lífrænt vottuðum evrópskum hráefnum og er gert úr 185gr. af 100% jurtavaxi. Kertið er 9cm hátt og 7,5cm í þvermáli og brennur í 45 klst. Ekki er mælt með því að brenna það lengur en 2 klst í senn til að hámarka endingu og lykt.