Ókeypis heimsending ef verslað er fyrir meira en 20.000 kr.

Conway Stewart Churchill Ceruleum blár
Conway Stewart Churchill Ceruleum blár
Conway Stewart Churchill Ceruleum blár
Conway Stewart Churchill Ceruleum blár
Conway Stewart Churchill Ceruleum blár
  • Hlaða mynd inn í gallerískoðara, Conway Stewart Churchill Ceruleum blár
  • Hlaða mynd inn í gallerískoðara, Conway Stewart Churchill Ceruleum blár
  • Hlaða mynd inn í gallerískoðara, Conway Stewart Churchill Ceruleum blár
  • Hlaða mynd inn í gallerískoðara, Conway Stewart Churchill Ceruleum blár
  • Hlaða mynd inn í gallerískoðara, Conway Stewart Churchill Ceruleum blár

Conway Stewart Churchill Ceruleum blár

Venjulegt verð
118,000 kr
Söluverð
118,000 kr
Venjulegt verð
Uppselt!
Einingaverð
per 
Með vsk.

Conway Stewart er einn fremsti pennaframleiðandi heims, stofnað í Bretlandi árið 1905. Hvern einasta Conway Stewart penna þarf að sérpanta og er hann handgerður frá grunni úr besta mögulega hráefni og málmum sem heimurinn bíður upp á í dag.

Margir af helstu heimsleiðtogum fyrri ára og nú hafa notið þess að eiga og skrifa með Conway Stewart blekpennum, þar má til að mynda nefna Elísubetu Englandsdrottingu, Winston Churchill, Tony Blair, Bill Clinton og George Bush. 

Það jafnast fátt á við fegurð og fágun Conway Stewart blekpenna. Sparipenni sem prýðir falleg skrifborð og fáguð föt. Svo ekki sé talað um skriftareiginleika pennana, sem eru einstakir, vegna hönnunar oddsins sem er svo fullkomnað með mýkt gullsins.

Conway Stewart Churchill Ceruleum blái blekpennin er einstaklega fallegur í þessum margtóna bláa lit með silfur hringjum. Penninn er stór og veglegur sem vekur athygli hvar sem hann fer.

Penninn sem sem við erum með í sölu er númer 17 af bara 25. Hann skartar fínum, tveggja tóna, 18kt gull oddi. Pennin er með blekpumpu til að draga upp blek en einnig er hægt að nota hefðbundin blekhylki í pennan.

Penninn er 14,6cm langur lokaður en 18,1cm opinn með lokið á efri endanum. Penninn er 1,5cm í þvermál og 48 grömm. Oddur: Miðlungs.

Þetta er penni sem endist áratugum saman, fallegur erfðargripur og einstakur söfnunargripur sem mun líklega auka verðgildi sitt með árunum.