Conway Stewart er einn fremsti pennaframleiðandi heims, stofnað í Bretlandi árið 1905. Hvern einasta Conway Stewart penna þarf að sérpanta og er hann handgerður frá grunni úr besta mögulega hráefni og málmum sem heimurinn bíður upp á í dag.
Margir af helstu heimsleiðtogum fyrri ára og nú hafa notið þess að eiga og skrifa með Conway Stewart blekpennum, þar má til að mynda nefna Elísubetu Englandsdrottingu, Winston Churchill, Tony Blair, Bill Clinton og George Bush.
Það jafnast fátt á við fegurð og fágun Conway Stewart blekpenna. Sparipenni sem prýðir falleg skrifborð og fáguð föt. Svo ekki sé talað um skriftareiginleika pennana, sem eru einstakir, vegna hönnunar oddsins sem er svo fullkomnað með mýkt gullsins.
Conway Stewart Raleigh mocha blekpennin er einstaklega fallegur penni, í kaffi lit með rauðum undirtónum og krem litamynstur sem gerir hvern penna einstakan, ATH að penninn í sölu hjá okkur er ekki eins og er í mynd.
Raleigh mocha penninn er nefndur í höfuð Sir Walter Raleigh, stjórnmálamaður, rithöfundur og landkönnuður. Leiðangrar hans til Norður-Ameríku urðu meðal annars til þess að bærinn Raleigh í Norður-Karólínu var nefndur honum til heiðurs. Hann var einnig sleginn til riddara af Elísabetu I Bretadrottningu eftir að hann barðist gegn Spænska flotanum árið 1588.
Penninn sem sem við erum með í sölu er númer 10 og skartar fínum 18kt gull oddi. Pennin er með blekpumpu til að draga upp blek en einnig er hægt að nota hefðbundin blekhylki í pennan.
Penninn er 14cm langur lokaður en 17,8cm opinn með lokið á efri endanum. Penninn er 1,3cm í þvermál og 31 grömm. Oddur: Miðlungs.
Þetta er penni sem endist áratugum saman, fallegur erfðargripur og einstakur söfnunargripur sem mun líklega auka verðgildi sitt með árunum.



