Carrière Frères er litla systir Trudon, stofnað árið 1884. Kertin frá Carrière Frères eru framleidd undir sama þaki og Trudon, í Normandí í Frakklandi. Á meðan Trudon bíður upp á fágaða, marglaga og flókna lyktaprófíla eru Carrière Frères frábær í einfaldleika sínum.
Lyktirnar frá Carrière Frères byggjast upp á blómum, ávöxtum og viðartegundum. Hreinar og bjartar lyktir sem draga þig inn í blómagarða, skóga og á ávaxta akra.
Ilm-Upphengin frá Carrière Frères eru frábær í lokuð og minni rými eins og í fataskápa, ferðavagna og húsbíla eða til að hengja upp inn á baði, þvottahúsi eða í andyri.
Rósapipar: Milli pipar og Damaskusrósar er ástin ástríðufull. „Blómdrottningin“, upprunalega frá Tyrklandi, Damaskusrósin hefur verið lofuð frá fornöld fyrir fínleika ilmsins og glæsileikans. Sögulega fagnað frá Kína til Persíu, rós er guðlegt tákn. Jafn sjaldgæfur og göfugur er pipar sem hefur verið verslað með frá fornöld: Piparinn var af skornum skammti og því var hann notaður sem gjaldmiðill.
Ilm-upphengið er gert úr lífrænt vottuðum evrópskum hráefnum og er gert úr 55gr. af 100% jurtavaxi. Nóg er að hengja upphengið upp þar sem þú óskar eftir góðri lykt og það þarf ekki að brenna vaxið til að það gefi frá sér lykt.
Hver pakki inniheldur tvö 55gr. ilm-upphengi.