El Casco er án efa fremsti framleiðandi heims, þegar kemur að vönduðum og fallegum skrifstofubúnaði. El Casco er spænskur framleiðandi sem framleiðir allar sínar vörur frá grunni í versksmiðju sinni á Spáni. Fyrirtækið byrjaði að framleiða byssur árið 1920 en hóf svo að framleiða skrifstofuvörur árið 1932. Enn þann dag í dag eru sömu vörur í framleiðslu hjá El Casco, óbreyttar, enda tryggir gæða framleiðsla og hönnun frábæra endingu og útlit sem enginn annar framleiðandi heims kemst nálægt.
El Casco skrifstofuvörur hefur verið hægt að finna á skrifborðum helstu leiðtoga heims, árhifaríkum listamönnum og fremstu kaupsýslumönnum seinustu hundrað árin.
M85 Heftarinn er frábær heftari sem fer vel í hendi. Heftarinn getur heftað 25 blöð og notar hefti n.23. Hægt er að stilla frágangin á heftunum á tvo mismunandi vegu.
Enn og aftur skilar El Casco frá sér einstakri hönnun sem er bæði falleg og þægilegt að vinna með.
Heftarinn kemur í vandaðri El Casco öskju sem verndar hann og hentar vel til gjafa.