Herbin blekþerra úr tré er nauðsynlegt verkfæri fyrir alla blekpennaáhugamenn og konur. Blekþerran hjálpar þér að þurrka umframblek á þeim pappír sem þú skrifaðir á. Með því að rúlla blekþerrunni yfir með áföstum þerripappír dregur þú upp allt umframblekið, sem hefði annars átt hættu á að kámast út og smitast á aðrar síður, fingur eða hluti.
Það fylgir ekki þerripappír með blekþerrunni.
Hægt er að kaupa Herbin Þerripappír hjá okkur sem passar í blekþerruna. Þar er hægt að klippa hverja örk niður í fjórar minni sem passa þá fullkomlega í þerruna.