Fallegur handgerður glerpenni sem er einstaklega gaman að skrifa með. Hver penni er handgerður og því engir tveir eins, hann kemur í nokkrum litum og er hver penni í fallegri gjafaöskju.
Penninn er 16 cm langur og hægt er að nota hefðbundið blek til að skrifa með glerpenna.
Herbin er elsti vax- og blek framleiðandi heims, stofnað í París árið 1670. Herbin framleiðir hágæða vax til að innsigla bréf, sem og einstakt blek sem hefur skipað sér sess í sögunni. Allt frá því að því að Loðvík 14. Fraklandskonungur notaði það fram til dagsins í dag. Í dag framleiðir Herbin enn hágæða blek og vax ásamt blekpennum og öðrum munum til skrautskriftar.



