Fallegt silfur blek frá Herbin sem setur skrautskriftina eða teikningarnar upp á næsta stig. Skemmtilegt blek sem má nota á margvíslegan og skapandi hátt fyrir frjóan huga.
Gott silfur er gulli betra!
Það er ekki hægt að nota blekið í hefðbundinn blekpenna. Við mælum með að nota glerpennana frá herbin eða pensil.
Herbin er elsti vax- og blek framleiðandi heims, stofnað í París árið 1670. Herbin framleiðir hágæða vax til að innsigla bréf, sem og einstakt blek sem hefur skipað sér sess í sögunni. Allt frá því að því að Loðvík 14. Fraklandskonungur notaði það fram til dagsins í dag. Í dag framleiðir Herbin enn hágæða blek og vax ásamt blekpennum og öðrum munum til skrautskriftar.