Kakimori er japanskt ritfangamerki sem var stofnað í Tókýó árið 2010 og á rætur að rekja til fjölskyldu með langa sögu í ritföngum og löngun til að gera ritun ánægjulegri. Í dag er Kakimori þekkt fyrir fallega hannaða penna, blek og pappírsvörur sem sameina japanska handverkshefð og vandaða, mínimalíska hönnun.
Kakimori blekið er litarefnablek sem þolir vatn þegar það þornar. Flaskan hallar um 8 gráður sem gerir það þægilegt að fylla hvaða penna sem fær að nýta sér þetta fallega blek.
Blekið er í 35ml glerflösku með ál loki.











