Kaweco er hágæða þýskur pennaframleiðandi sem hefur verið starfræktur frá árinu 1883. Kaweco pennarnir eru þekktir fyrir afbragðs gæði á viðráðanlegu verði, sem gerir þá vinsæla penna til daglegra nota.
Kaweco Liliput pennarnir eru einhverjir þeir minnstu sem eru framleiddir í heiminum í dag, en þeir eru aðeins 9,7 cm að lengd en verða 12,5 cm langir þegar lokið er komið á endann, sem gerir hann einstaklega þægilegan til að skrifa með.
Collection þýðir að þessir pennar eru gerðir í takmörkuðu magni og gerir þá að "Collectors item"
Penninn tekur standard blekhylki, sem fást í mörgum litum.








