Kaweco er hágæða þýskur pennaframleiðandi sem hefur verið starfræktur frá árinu 1883. Kaweco pennarnir eru þekktir fyrir afbragðs gæði á viðráðanlegu verði, sem gerir þá vinsæla penna til daglegra nota.
Kaweco Perkeo eru léttir og litríkir pennar með þægilegri stærð og mjúkri og áreiðanlegri ritupplifun. Skemmtileg hönnun gerir pennann að frábærum hversdagspenna, bæði fyrir byrjendur og vana penna áhugamenn.
Penninn er 14 cm og 14 grömm. Penninn notar 0.5mm pennaáfyllingar



