Sailor pennarnir urðu fyrst til árið 1911 þegar verkfræðingur frá Hiroshima sá breskan blekpenna frá sjómanni sem hafði verið í siglinum þar. Í framhaldi af því ákvað verkfræðingurinn Kyugoro Sakata að framleiða fyrstu japönsku blekpennana, sem við þekkjum í dag sem Sailor penna.
Sailor pennarnir eru þekktir um allan heim fyrir einstaklega vandaða odda sem hafa frábæra skriftareiginleika, enda framleiddir í japan þar sem fínleiki, nákvæmni og vandað handbragð á sér mikla og langa sögu.
Sailor 1911 Large Shining er fallegur penni frá Sailor. Glæsilegur og fágaður penni með 18kt gull oddi sem gefur pennanum frábæra skriftareigileika.
Penninn er í perlugljáandi svörtum lit og með gyllingu. Fullkomlega klasísk og tímalaus hönnun frá Japan. Pennin er með blekpumpu til að draga upp blek og tekur Sailor blekhylki.
Penninn er 14,1cm langur og 21,6 grömm. Penninn kemur í fallegri Sailor gjafaöskju.
Penninn er með medium oddi en hægt er að óska um aðra stærð.
Úrval Sailor penna er mun meira í verslun okkar á Hafnarstræti 18. Þar er hægt að finna penna með 14kt, 18kt og 21kt gulli í fjölbreyttum stærðum og litum.



