Sailor pennarnir urðu fyrst til árið 1911 þegar verkfræðingur frá Hiroshima sá breskan blekpenna frá sjómanni sem hafði verið í siglinum þar. Í framhaldi af því ákvað verkfræðingurinn Kyugoro Sakata að framleiða fyrstu japönsku blekpennana, sem við þekkjum í dag sem Sailor penna.
Sailor pennarnir eru þekktir um allan heim fyrir einstaklega vandaða odda sem hafa frábæra skriftareiginleika, enda framleiddir í japan þar sem fínleiki, nákvæmni og vandað handbragð á sér mikla og langa sögu.
Sailor 1911 Standard Demonstrator er skemmtilegur penni frá Sailor þar sem allt er til sýnis. Penninn er glær þannig hægt er að sjá alla galdrana á bakvið góðan blekpenna og eins verður þú aldrei í vafa hvaða blek þú ert með í pennanum. Penninn er með 14 kt. gull oddi.
Penninn er glær með gyllingu. Skemmtileg og nútímaleg hönnun, byggð á gömlu formi frá Japan. Pennin er með blekpumpu til að draga upp blek og tekur Sailor blekhylki.
Penninn er 13,5cm langur og 17 grömm. Hægt er að velja um stærð oddar. (Ath að japanskir oddar eru fíngerðari en evrópskir oddar)
Penninn kemur í fallegri Sailor gjafaöskju.