Sailor pennarnir urðu fyrst til árið 1911 þegar verkfræðingur frá Hiroshima sá breskan blekpenna frá sjómanni sem hafði verið í siglinum þar. Í framhaldi af því ákvað verkfræðingurinn Kyugoro Sakata að framleiða fyrstu japönsku blekpennana, sem við þekkjum í dag sem Sailor penna.
Sailor pennarnir eru þekktir um allan heim fyrir einstaklega vandaða odda sem hafa frábæra skriftareiginleika, enda framleiddir í japan þar sem fínleiki, nákvæmni og vandað handbragð á sér mikla og langa sögu.
Sailor Jellyfish blekpennarnir eru framleiddir í takmörkuðu upplagi í takmarkaðan tíma. Pennarnir koma í fimm gegnsæjum, glitrandi litum, líkt og marglitur heimsins, sem telur yfir 3000 tegundir. Penninn er í millistærð og einstaklega skemmtilegur penni sem er tilvalinn fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í blekpennaveröldinni ásamt því að vera skemmtilegur í safn þeirra sem eiga aldrei nóg af blekpennum.
Penninn er með 14kt gulloddi að hætti Sailor. Pennin notar Sailor blekhylki og einnig er hægt að setja Sailor Blekpumpu í pennan.
Penninn er 13,5cm langur og 17 grömm. Oddur: Miðlungs-Fínn. (Ath að japanskir oddar eru fíngerðari en evrópskir oddar)
Penninn kemur í fallegri gjafaöskju.