Skjöldur er íslenskt lífrænt hvítlaukssalt úr Dölunum, framleitt af Dalahvítlauki. Hvítlaukurinn er lífrænt ræktaður í Dölunum og blandaður flögusalti sem framleitt er á Reykhólum við Breiðafjörð.
Frábær ný íslensk afurð sem hentar vel í alla matreiðslu, með öflugu og góðu hvítlauksbragði. Frábært á pizzuna, kartöflurnar, pastað og fleira sem hugurinn girnist.
Hvítlaukssaltið kemur í fallegum 50gr krukkum og inniheldur 75% salt og 25% hvítlauk.