Trudon kertaframleiðslan var stofnuð árið 1643 og er elsti kertaframleiðandi heims. Trudon er eini konunglegi kertaframleiðandi Frakklands og sá meðal annars um að útvega Napoléon Bonaparte kerti í hæsta gæðaflokki. Á heimssýningunni í París, árið 1889 þegar Eiffelturninn var opnaður, hlaut Trudon Gullverðlaun fyrir framúrskarandi framleiðslu.
Samhliða kertaframleiðslu býður Trudon upp á hágæða húsilm (deffuseur) þar sem sömu olíur eru nýttar og við gerð kertana. Húsilmurinn kemur í fallegum handgerðum glerkrukkum með gylltu loki og ilmstöngum sem vekja athygli fyrir fegurð og fágun.
Húsilmurinn hentar sérstaklega vel þeim sem vilja hafa stöðugan ilmgjafa í rýminu án þess að þurfa að kveikja á kerti. Uppgefinn endingartími á 350ml húsilminum eru 3-4 mánuðir en okkar reynsla á Íslandi sýnir að það sé mjög varlega áætlað og dæmi um að ilmurinn og olían vari í meira en ár hjá okkar viðskiptavinum.
ABD EL KADER lyktin: Marokkósk myntu te.
Fjallaloft Mascara rífur upp grænan ilm myntunnar í bland við hita af pipar og engifer. Saman blandast þetta við ljúfan ilm af te og tóbaksreyk. sem skapar eina vinsælustu lykt Trudon.
Lyktarprófíll:
Höfuð: Sólberjaknappur, sítróna, negull, engifer, mynta og epli.
Hjarta: Jasmín.
Grunnur: Vanilla.
Húsilmurinn fæst í tveimur stærðum, sem henta mismundandi stærð rýma og hafa mis langa endingu.
Ilmstangir - 350ml
Ilmstangir - 1,000ml
Hægt er að sérpanta áfyllingar fyrir húsilminn.