Trudon kertaframleiðslan var stofnuð árið 1643 og er elsti kertaframleiðandi heims. Trudon er eini konunglegi kertaframleiðandi Frakklands og sá meðal annars um að útvega Napoléon Bonaparte kerti í hæsta gæðaflokki. Á heimssýningunni í París, árið 1889 þegar Eiffelturninn var opnaður, hlaut Trudon Gullverðlaun fyrir framúrskarandi framleiðslu.
Samhliða kertaframleiðslu býður Trudon upp á hágæða húsilm (Sprey) þar sem sömu olíur eru nýttar og við gerð kertana. Húsilmurinn kemur í fallegum handgerðum glerflöskum með fallegri gamaldags sprey pumpu.
Húsilmurinn í sprey formi hentar sérstaklega vel til að fríska upp á ilminn í rýminu með skjótum og góðum hætti. Þá er flaskan gríðalega falleg á borði eða upp í hillu. Fallegur munur sem vekur verðskuldaða eftirtekt.
CYRNOS lyktin: Miðjarðarhafs ilmur
Í ilmmiklum sítrusgarði sínum tók sólríka Cyrnos-villan fagnandi á móti menningarsamfélaginu. Drottningar, skáld og listamenn hittust í skugga fíkjutrjáa og sólhlífarfura. Þau nutu stórkostlegs útsýnis og auðvelds lífs sem var svo dæmigert fyrir bláu Miðjarðarhafsströndina.
Lyktarprófíll:
Höfuð: Sítróna, Myrtla og Timjan
Hjarta: Sedrusviður, Svört fíkja, Lavender og Fura
Grunnur: Kasmírviður, Moskus og Patchouli
Húsilmurinn fæst í 350ml. spreyflöskum.