Trudon kertaframleiðslan var stofnuð árið 1643 og er elsti kertaframleiðandi heims. Trudon er eini konunglegi kertaframleiðandi Frakklands og sá meðal annars um að útvega Napoléon Bonaparte kerti í hæsta gæðaflokki. Á heimssýningunni í París, árið 1889 þegar Eiffelturninn var opnaður, hlaut Trudon Gullverðlaun fyrir framúrskarandi framleiðslu.
Samhliða kertaframleiðslu býður Trudon upp á hágæða húsilm (Sprey) þar sem sömu olíur eru nýttar og við gerð kertana. Húsilmurinn kemur í fallegum handgerðum glerflöskum með fallegri gamaldags sprey pumpu.
Húsilmurinn í sprey formi hentar sérstaklega vel til að fríska upp á ilminn í rýminu með skjótum og góðum hætti. Þá er flaskan gríðalega falleg á borði eða upp í hillu. Fallegur munur sem vekur verðskuldaða eftirtekt.
ERNESTO lyktin: Leður og tóbak
Á hóteli á Havan undir sól byltingarinnar finnur þú hvernig lykt leðurs og vindla yfirtekur huga þinn í bland við byssupúðrið sem svífur um borgina.
Lyktarprófíll:
Höfuð: Bergamót, Greipaldin og Romm
Hjarta: Eikarviður, Negull, Labdanum og Patchouli
Grunnur: Tóbak, Brennisteinn, Leður og Mosi
Húsilmurinn fæst í 350ml. spreyflöskum.