Trudon kertaframleiðslan var stofnuð árið 1643 og er elsti kertaframleiðandi heims. Trudon er eini konunglegi kertaframleiðandi Frakklands og sá meðal annars um að útvega Napoléon Bonaparte kerti í hæsta gæðaflokki. Á heimssýningunni í París, árið 1889 þegar Eiffelturninn var opnaður, hlaut Trudon Gullverðlaun fyrir framúrskarandi framleiðslu.
Trudon kertin hafa fyrir löngu skipað sér sess og verið leiðandi í veraldarsögunni, til að mynda var Trudon fyrsti framleiðandi heims til að framleiða kerti úr býflugnavaxi, en í dag er vaxið unnið úr plöntum og eru kertin því fullkomlega vegan. Hluti af hverju seldu Trudon kerti fer til verndunar býflugna í útrýmingarhættu. Slagorð Trudon er “Deo regique laborant” sem þýðir, "Býflugurnar vinna fyrir Guð og Konung."
Trudon eru heimsklassa lúxus kerti sem vekja athygli hvar sem þau eru, bæði vegna einstakrar lyktar og óviðjafnanlegt útlit, þar sem hvert kerti er að fullu handgert í Frakklandi. Fyrir vikið verður hver krukka einstök í útliti en lögun þeirra er sótt í franskar kampavínsfötur.
Trudon er fyrsta og eina fyrirtækið í heiminum sem framleiðir stjakakerti með ilm. Kertin hafa allt að 7 klukkustunda brennslutíma og brenna hreint án þess að dropa.
Nazareth lyktin: Appelsína og krydd
Með sætum og krydduðum blæ snýr Nazareth, klassískur ilmur frá Trudon, aftur á þessu tímabili og bætir hlýju við hátíðarnar. Ómótstæðileg blanda af negul, appelsínu og bourbon-vanillu vekur gleði og sameinar fjölskyldu og gesti við hátíðarborðið.
Lyktarprófíll:
Höfuð: appelsína, kanill, mandarínu og greipaldin.
Hjarta: Kanill, kardimommur, Kínverskur osmanthus, negull og appelsína.
Grunnur: Cistus, musk, bourbon vanilla, bensóín kvoða og myrra.